Hugsanir Siljunnar..

'Actions Speak Louder than Words'

20.07.2008 11:24:42 / silla

Ny Indlands heimasida...



Buin ad opna nyja sidu sem geyma aevintyrin i Indlandi naesta halfa arid...


www.indiasilja.blogcentral.is ... Endilega fylgist med mer, fyrsta faerslan komin:)
P.s. myndir a leidinni..
Knus a ykkur!

Siljan IndiaFari..


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 12:49:44 / silla

Roskilde Festival- checked.. næsta stopp: Indland:)

Stend hérna vid standtølvu á Kastrup. Var ad kvedja Mareni, Sjonna, Fannar og Robba thegar thau stiigu upp í vél heim til  Íslands. Thetta er búid ad vera rosa gaman, Keldan stendur alltaf fyrir sínu. Er samt svekkt útaf Fedde le Grand tónleikunum en vid komumst ekki á thá vegna trodnings. Svekkjandi. Thad á ekki ad gerast á Hróaskeldu, og ætla ég ad senda stjórnendum theirrar hátídar formlegt kvørtunarbréf sem fyrst!

En ad ødru.. fluginu mínu til London var aflýst í dag og missi ég thar af leidandi af fluginu til Delhi. En no sweat, ég á pantad annad far núna klukkan 16 med ødru flugfélagi og annad flug til Indlands. Verd komin thangad kl 11 ad stadartíma í fyrramálid. Frekar mikid ferdalag framundan... en verd ad fara núna, tíminn ad renna út.. skrifa meira seinna:)

Silja


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 03:27:10 / silla

Ég er komin heim í heiðardalinn:)


Komin á heim á Klakann! Dásamlegt að vera komin!

Var svolítið nálægt því að komast ekki því að það var öllu stolið af mér, og Siljan hefði ekki komist í gegnum Kastrup án gildra skilríkja.. En þetta reddaðist! Skrifa sólarsöguna seinna..

Er þreytulíus núna og ætla að fara að sofa!

Er með venjulega númerið mitt svo að ef þið viljið my ass than call me biach:)
 
Siljan súperglaða:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 14:13:45 / silla

Komin í sumafrí!:):):)

Nú var ég að koma úr síðasta prófinu mínu og ég náði! Nú er ég komin í langdregið sumarfrí, búin að ná öllum prófunum og þarf ekki að hafa meiri áhyggjur af skólanum:)

Nú er bara að hugsa um Indland. Ég er að springa úr gleði!
Gleði gleði gleði:)

Gleðilegt sumar kálfarnir mínir og sjáumst eftir 2 daga!

Silja glaða sem kemur á klakann á sunnudaginn:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 09:21:42 / silla

P-in þrjú, passi, peningar, parmiði.

Nú er sko ferðahugur kominn í telpuna! Trúi þvi varla að síðasta prófið sé á morgun og að ég sé að koma eftir 3 daga! Tara er farin að titra af eftirvæntingu og hlakkar mjög til að fara heim og hitta alla á Íslandi. Við erum búnar að pakka öllu dótinu hennar í kassa og tæma herbergið hennar. Það er nú frekar tómlegt, en hún fékk heila ferðatösku sem hún mátti fylla af dóti til að taka með til Íslands. Restin fékk að fara í kassa og inn í geymslu. Er líka búin að tæma næstum allt annað, eiginlega bara eftir að flokka hvaða föt á að taka með og hvað á að skilja eftir.

Það er alveg glatað veður hér í Danmörku. Sólin virðist vera í feluleik og skilur ekki að við erum löngu búin að gefast upp að leita að henni svo að hún getur alveg komið út úr skýjunum. Ég sit hér með gæsahúð og nefrennsli, og vil gjarnan fá smá Spánarveður áður en ég fer. Gjarnan.

Á morgun er stór dagur. Þá er ég búin í prófum. Hugsið til mín klukkan 10 á íslenskum tíma þegar ég labba inn í prófið og hálftíma seinna þegar ég fæ að vita hvort ég hef náð eða ekki. Þetta er munnlegt próf. Gleði gleði. Þarf að halda fyrirlestur á indversku í ca. 15 mínútur og ég hef ákveðið að tala um líf mitt á Íslandi. Það er kannski ekkert mál, ég skrifa ræðuna bara niður og reyni að leggja hana á minnið. Ég kvíði mest fyrir að skilja ekki þegar próflesarinn spyr mig á indversku út úr fyrirlestrinum. Þá er ég bara tilbúin með svarið: "malúm nahí hai" (Ég bara veit það ekki).. Klassískt svar sem virkar alltaf. Gerði þetta alltaf í spænsku líka á sínum tíma, og alveg örugglega í dönsku í fornöld. Það er ekki hægt að gagnspyrja manneskju sem veit ekki svarið, en varla hægt að fella hana þar sem hún svarar á tungumálinu, múhahahahha, hinn fullkonni glæpur múhahahaha.

Ég hlakka til að hitta ykkur öll, hlakka til að kyssa íslenska grundu. Er orðin svo vön því að koma í hverjum mánuði svo að nú er alveg hrikalega langt síðan ég kom (3 mánuðir).

-mai tum sab log pyar karte hú-

SWEET THURSDAY HONEYS:)
Siljan


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 09:25:38 / silla

हम कौन हैं ?

Gleðilegan föstudag þrettánda. Alltaf gaman að hafa föstudag! Af hverju ætli sá siður, að kalla þennan dag óhappadag, hafi skapast?

Ég er að leggja lokahönd á 48 tíma heimapróf núna. Vitiði hva það þýðir? Það þýðir að ég á bara eitt próf eftir og svo er ég BÚIN og komin í sumarfrí!!! Ég get ekki beðið og finn bara þrána yfir að komast í frí stigmagnast á hverjum degi. Hlakka svo til að komast í sumarfrí, labba frí og frjáls út í sumarið með engar bækur í töskunni. Get ekki beðið.

Gaman að segja frá þessi heimaprófi. Já, í allt tólf blaðsíðna þýðing af hindi script yfir á dönsku. Á dönsku!!!! Arrggg ég þarf sem sagt að þýða yfir á ensku, og þýða þaðan yfir á dönsku. Og ekkert af þessu er móðurmálið mitt. Eruði að lesa mig eða? Ekki feitt skrítið að ég sé að keyra mig áfram á síðustu orkudropunum. En eftir 7 daga er ég færdig.

Og eftir 9 daga tek ég flugið til Íslands! Og eftir 18 daga flýg ég á Roskilde. Þegar ég segi Roskilde segir þú festival, Roskilde - Festval - Roskilde - Festval... WHEEEEEE!!
Og eftir 25 daga er ferðinni heitið til Indlands. ...daddaddadadddaa...

क्या आपको मालूम है कि ऐडवाइज़ और ऐडवाइस में क्या फ़र्क़ है या फिर ऐक्सेप्ट और एक्सेप्ट में क्या फ़र्क़ है और ऐसे शब्दों को क्या कहते हैं?

Já það er spurning.

:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 07:59:59 / silla

Nýir medleigjendur!

Ég er komin med nýja medleigjendur. Thær eru ørugglega í tugatali og heita silfurskottur. Thær eru nú bara med frekar mikla frekju, hanga alltaf inni á klósetti og neita ad borga leigu. Oft tekur maður ekki eftir theim thví ad thær búa í myrkrinu, hef sennilega búið med theim frá upphafi en ekki tekid eftir theim. Fyrr en í gær. Thá sat ég á klósettinu og tók eftir einni vesældarlegri skottu snúast hálfthreytulega í hringi á gólfinu. Hefur líklega verid í sídustu andatøkunum greyid og ekki nád ad thjóta í skúmarskot thegar ég kveiktu ljósin. Lalladi bara undir eitt handklædi sem lá á gólfinu. Eymingja greyid. Leyfdi henni bara ad vera thar í fridi og fór bara fram. Mér er ekkert illa vid silfurskottur. Thær láta mann alveg í fridi og koma bara fram í myrkrinu. Eitthvad annad en køngulær. Thær elta mann nú bara. Oj. Nei silfurskottur eru ágætar. Líka miklu sætari. Vildi samt ad thær gætu nú tekid thátt í leigunni. Thad er ekkert frítt í thessum heimi. Thad á líka ad gilda um silfurskottur.

Ég fór í gær og keypti mér bakpoka fyrir ferdaflakkid. Núna er allt ad smella saman maaaaaaar. Er búin ad fá Lifrarbólgu A og B sprautur, salmonellu, stífkrampa og japønsku veikisprautur.. á morgun fæ ég svo adra Lifrarbólgu B og berkla sprautu. Thetta er allt ad koma fóks. Get varla bedid med ad klára prófin.

Thad er ad fara ad rigna hér í DK.. já tveggja mánada strandavedrid lidid. Dem.

Adiós..


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 09:04:36 / silla

Gefa fyrir hvað?

Hér með tilkynnist að það eru 2 ákveðnar manneskjur sem EKKI óskuðu mér til hamingju með afmælið í gær. Þeim verður seint fyrirgefið múhahahahahaha!

Annars þá var ég að leggja lokahöndina á seinni ritgerðina og er að fara að skila henni á eftir. Er búin að pósta þeim báðum á myspace:
Hér er er Kulture ritgerðin: 
http://blog.myspace.com/index.cfm?fuseaction=blog.view&friendID=160344305&blogID=402502039
Hér er Religion ritgerðin: http://blog.myspace.com/index.cfm?fuseaction=blog.view&friendID=160344305&blogID=402501007

..svona ef þið skylduð hafa einhvern áhuga á að kíkja á þær:)

Annars segi ég bara allt gott og blessað, þjóðhátíðadagur Dana á morgun svo það er bara fri NOHHHH:)

Kveðjur úr sólinni til allra nema þessarra tveggja sem gleymdu afmælinu mínu.. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 06:52:47 / silla

Nei, bara misbetri..

Í dag er afar stór dagur. Í dag fæddist merkilegasta vera jarðarinnar. Þegar hún steig niður á jörðu kom ljós yfir heiminn. Bjartir geislarnir liðu yfir Móður Jörð og sjá, nú vissu allir að nýir tímar voru í nánd. Þegar þau sá hana, féllu þau fyrir fætur henni sem dauð væru. Og hún lagði hægri hönd sína yfir þau og sagði: "Verið ekki hrædd, ég er hin fyrsta og hin síðasta. Í upphafi var Orðið, og orðið var hjá Silju. Orðið var Silja. (Siljubók 1:17)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 09:54:50 / silla

Merkilegt..

Hvað þýðir að dreyma Ástu? Anybody? Mig er farið að dreyma stórfurðulega og greinilega miklir viðburðir í vændum. Hlakka til að vita hvernig þeir verða. Á einhver nafnaþýðingabók? Enníbodddí? Ásta hlýtur að tákna ást. Hey kannski ég sé að fara að finna ástina? Þessi ásta var að þvo á sér hárið. Merkilegt.

Dreymdi líka tvö önnur nöfn alveg rosalega sterkt en það er Teódóra Diljá og Arnheiður Anna.. WHAT? Þetta eru nöfn sem eru mér svo allsekki ofarlega í huga og þekki ég ekki neina með þessum nöfnum. Tvær litlar ljóshærðar stelpur með þessum nöfnum. Spennandi. Verð að finna út hvað þessi nöfn þýða! Maaaaaan!

Annars er ég búin að skila einni ritgerð VÍÍÍÍ... bara gleði í bænum núna, er svo frussandi ánægð að ég ætla að fá mér melónu. Mjálmandi melónu og meira með.

Annars er lífið bara hamingja þó að það sé prófapiríód. Gæti ekki verið glaðari þessa dagana!:)

Love u all my pussies!


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 07:10:33 / silla

Kaddaðgera?

Það er bjart. Vindurinn blæs í gegnum gluggann og feykir gluggatjöldunum til. Lítil fluga hamast við að komast út um rúðuna. Allt angar af grasi. Grasi og kaffi. Tveir menn sitja og lesa blaðið. Annars er salurinn tómur. Ekki margir komnir svona snemma morguns. Hún horfir á gufuna stíga upp úr kaffibollanum og dregur andann. Það er sól úti en inni í salnum er rakt og gott. Köngulóarvefirnir í loftinu gefa til kynna að ekki sé búið að þrífa það lengi. Henni er sama. Hún er hérna til að læra en nennir því ekki. Vill fara út í sólina. Hún fær sér sopa af kaffinu og hugsar hvað hún hlakkar til þegar prófin eru búin.  Já hún getur ekki beðið. Annar maðurinn stendur upp og gerir sig líklegan að fara. Hún veltir því fyrir sér hvort að hún ætti að ná í blaðið. Nei, það er bara afsökun fyrir að læra ekki. Eins og að skrifa þetta blogg. Henni leiðist en hefur sig ekki í það að fara að læra. Frekar lýsir hún hverri einustu leiðindar-sekúndu á blogginu sínu. Spennandi.

Vagga vagga, vagga mér í nótt.
Vagga vagga, vektu nýjan drótt.
Þú getur sefað sorgir, sofnar borgin, vært og rótt.

Rugga rugga, rugga mér í blund
Rugga rugga, rökkrið felur sund.
Þín hönd er góð og gjöful, gleður, hressir særða lund.

Vagga vagga, vaktu yfir mér.
Vagga vagga, vertu alltaf hér.
Þú kannt að kynda elda, kyrrlát nóttin fögur er.
(Hjálmar)


Farin að læra beljurnar mínar.



» 7 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 16:02:24 / silla

Af því að..

..ég er einstaklega vel gefin og hæfileikarik ung stúlka, ætla ég að sýna fram á þann undraverða eiginleika minn að segja til um hluti. Ísland mun lenda í 13. sæti í Evróvisjón í kvöld. Danmörk hreppir það áttunda. Keep it and weep it.

Þið leggið saman í púkk og kaupið handa mér bíl ef að ég hef rétt fyrir mér múhahahahaha..

Góða skemmtun í kvöld rúsínurassgötin mín:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 09:24:41 / silla

Éetlaaað kjósa Ísland. Jibbí.

Evróvisjón er víst á laugardaginn. Það veit ég í gegnum íslenska fréttamiðla. Hef ekki séð eða heyrt minnst á neitt í líkingu við orðið Evróvisjón hérna í DK. Öllum virðist vera sama. Var samt vör við, í þrjú þúsund kílómetra fjarlægð, að íslenskst menningarlif lamaðist á hverjum laugardegi í vetur og hvert mannsbarn kann öll lögin sem komust áfram í Laugardagslögunum. Íslendingar eru skrítnar skrúfur. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt sigurlag Íslendinga í ár. En ég er með Wiggle Wiggle song á ipodinum. Af hverju komst það ekki áfram. Bara gott lag. Vona að ég verði ekki fyrir vonbrigðum með Júrobandið. Vonandi er lagið skárra en nafnið, því ef að nafnið er að kynna lagið þá á ég eftir að slíta af mér handlegginn og troða honum upp í mig. En ég kýs samt Ísland. Áfrám Ísland.

Ég man einu sinni eftir undankeppni þar sem ég hélt að mamma myndi ekki fá að lifa lengur. Þá var Sóktrates að taka þátt, og mamma sagði hátt og skýrt að ef að Sókrates myndi ekki vinna þá myndi hún éta teppið sem við láum undir. Ég veit ekki hvað ég var gömul, kannski fimm-sex ára en ég man það að ég bað til guðs með kökkinn í hálsinum að láta þetta lag vinna. Skýr eins og ég er núna og skýr sem ég var þá, þá vissi ég að sjálfsögðu að mamma myndi ekki lifa með tvo metra af efni í hálsinum. Guð bænheyrði mig. Ég hef sjaldan verið eins þakklát þegar lagið komst áfram og mamma fékk að lifa, og þakkaði fyrir í hljóði með tárin í augunum. Já Guð er góður og maðurinn hennar líka.

Sem betur fór hótaði mamma ekki meira að borða neina hluti. En ég vona að Júróbandið sé betra en það að hún fari að tapa einhverjum veðmálum við teppið sitt. Bannað, mamma, bannað.

En að öðru. Gaman að vita það að alla mína grunnskólagöngu tifaði risasprengja á skólalóðinni hjá skólanum mínum. Gott að hún var grafin svona langt niður því hversu oft vorum við að fíflast um túnin þarna hjá Snælandsskóla. Ég segi nú ekki annað. Og gott að Sprengjusérfræðingar gátu gert hana óvirka. Já, ég er jafn hissa. Ísland á sprengjusérfræðinga. Vá hvað þeirra lífið er rólegt og lítið að gera í vinnunni. Ætli þeir séu á fullum launum? En það er nú kannski bara eins gott. Það hefði verið leiðinlegra ef hálfur Kópavogurinn hefði þurrkast út.

Jæja, ætla niður að síki.


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 07:17:45 / silla

Besta fegrunarmeðalið er lífsgleðin

Það er alveg mikið til í þessu. Hvað er meira fráhrindandi en fólk með munnvikin niður að nafla. Uppáhaldspersónurnar mínar í lífinu eru einmitt þær sem eru oftast í góðu skapi, eru brosandi og hlægjandi og líður vel. Alltaf jafn óskemmtilegt að þurfa að umgangast fólk sem er síkvartandi. Booooooooring.

Að því tilefni ætla ég að kvarta smá því að ég er alltof lífsglöð þessa stundina múhahahaha..

Það mætti halda að sérfræðingar haldi að við, leikmennirnir í lifinu, séum alveg óttalega vitlaus. Já, gerum heila frétt um uppgötvun einhvers barnasálfræðings að það sé hollt fyrir börn að láta sér leiðast. Vá voða uppgötvun. Auðvitað er það hollt. Það gefur augaleið. Ef þau láta sér leiðast læra þau að finna eitthvað til að hafa fyrir sér. Mér finnst persónulega að þessir sérfræðingar sem eru að koma með svona staðreyndir eftir x marga rannsóknatíma ættu nú bara að fara að skrúbba klósett og skila skírteininu sínu sem þeir fengu í cheeriospakkanum forðum. Hvernig væri að eyða frekar fé og tíma í rannsóknir á einhverju sem við vitum ekki eða vitum lítið um.

Eins og þessir læknar. Mikið getur stundum verið sárt að fara til læknis. Það er til dæmis ein læknastofa á Íslandi, sem ég ætla ekkert að fara að nafngreina, sem virðist einsetja sér að ráða cheeriospakka lækna til starfa. Hversu oft hefur maður borgað morðfjár fyrir ranga sjúkdómsgreiningu og vitlaus lyf? Veit ekki hversu oft, en man að í eitt skiptið þurfti að henda mér niður á slysó eftir eina slíka heimsókn. En betra er víst að ganga fram af fólki en björgum svo að ég fyrirgaf það fljótt.

Þetta er ekkert skárra hérna en heima. Til dæmis var Bjössi skallaður í kinnbeinið á fótboltaæfingu um daginn og var sendur upp á slysó. Þar var hann sendur heim með þau skilaboð að hann væri með vægan heilahristing. Mæ ass vægur heilahristingur. Maðurinn lá bara með lokuð augun og gat varla talað. Ég reyndi að halda honum vakandi með að segja honum sögur og fíflast en ekkert virtist virka. Hann var mjög bólginn og með holu inn í gagnaugað. Lekkert. Nei nei kemur í ljós tveim dögum seinna að hann er kjálkabrotinn á fjórum stöðum og þurfti að setja einhverjar plötur inn í beinið og negla eitthvað. Já oft eru læknar sko með lífið í lúkunum. Það þarf að hætta að selja þessum læknum cheerios.

En upp með gleðina. Oft er grafinn maður látinn, og ef hann er ekki látinn er það oft læknum að þakka, og þá er um að gera að grafa hann upp. Læknar eru nú líka fólk eins og rauðhærðir og geta gert mistök eins og allir aðrir. Það er hægt að þakka læknum fyrir margt. Ef ekki væru til læknar, þá væri ekki til Grey´s Anatomy. Það væri nú leiðinlegt. Auk þess eru læknar HOT. Já, eða svona flestir. 

Lífið er verknaður og það eina sem linar þrautir örvæntingar og illsku er að reyna að gera gott.  Það dugar gegn öllu.

Þarf að halda áfram að skrifa þessa blessuðu ritgerð um Indira Gandhi. Hún var sko enginn læknir. Hún var stál. Stál Indlands, bæði lýðræðisherra og einræðisherra, önnur konan í heiminum að vera ráðandi yfir landi, og önnur sinnar fjölskyldu að vera forsætisráðherra Indlands. Geri aðrir betur.

Ég out.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 10:50:04 / silla

Betra er að vera góðs manns frilla en gefin illa.

Jæja, sólin að hverfa og einhverjir skúrar eiga að taka við, nú verð ég að finna einhverja aðra afsökun fyrir að læra ekki. Var að frjósa í morgun. Mig langar í sólina aftur.

Skemmtilegt að lesa mbl.is i dag. Ástrala fannst bjórkassinn sinn merkilegri en fimm ára gamall sonur sinn. Setti hann þess vegna bjórkassann í framsætið og spennti á hann bílbelti en henti syninum á bílgólfið þar sem að hann sat beltislaus. Ha ha ha ha, kræst, hvernig er heimurinn að verða? Þar er líka grein um það að það er bannað að stríða rauðhærðum. Hvar stendur það? Er þá líka bannað að stríða varastórum? Rauðhærðir eru eitthvað voða viðkvæmir fyrir hinum íbúum heimsins. Það má ekki uppnefna þá, eða henda í þá snjóboltum. Bráðum verða til rauðhærðaafsláttarmiðar í strætó og forsetinn verður orðinn rauðhærður. En já, ætli rauðhært fólk sé ekki líka fólk. 

Annars er rauðhaus ekki það sama og rauðhaus. Mjög mismunandi hvernig þessi flokkur af fólki er. Ég veit til dæmis um eina stelpu sem er alveg eindæmis ljót. Hún er rauðhærð. Svo veit ég um aðra stelpu sem er bara nokkuð snotur. Hún er líka rauðhærð. Ef ég væri með þær báðar í bílnum mínum, þá myndi ég spenna þessa sætu en henda fésinu á bílgólfið. Ég get það samt ekki því að ég á ekki bíl. Ég er samt ekki rauðhærð, bara bý í Danmörkinni.

Uppfinning ársins er klárlega "LifeStraw" .. Mig langar helst að hoppa til Indlands með milljón stykki af LifeStraw og dreifa. Hvernig hefur fólki ekki dottið þetta í hug fyrr. Lítið plaststykki, sem kostar sama og ekkert í framleiðslu, sem hreinsar vatn gegn síklum og öðru sem valda sjúkdómum. Þú hreinlega stingur því ofan í hvaða ógeðslega vatn sem er og sígur, og upp í þig kemur hreinsað vatn. Langstærsta vandamálið í þriðja heiminum er vatnsskortur, það er að segja skortur á hreinu vatni. Ótrúlegt að fatta þetta ekki fyrr. Ég tek ofan af fyrir þessari uppfinningu enda gerir hungraður maður sér mat úr öllu. Ef að ég væri súper klár þá myndi ég sko gerast uppfinningakona.

Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmilausar og og ætla ég nú að nefna dæmi. Fyrir tíu árum var ég 15 ára gemlingur sem gerði foreldra mína gráhærða fyrir aldur fram. Hlustaði ekki og heyrði ekki. Þá var í skotin í strákum sem að voru rosalegir töffarar. Já voru rosalegir töffarar en eru í dag á einhverju ráfi um lífið. Þá leit maður ekki við þeim sem rúla landinu í dag. Voða getur maður verið vitlaus. Næst þegar ég verð 15 ára ætla ég að pikka um Teit Gleraugu Hallgrímsson veggjalús og efnafræðisnilling.  Hell jeeeeeee.

Haldið áfram að elska hvort annað. Við erum öll adorable, hvernig sem við sjálf erum á litinn eða hárið á okkur. Munið að Siggi litli í sjötta bekk var ekkert verri en hinir þó að hann væri bæði lítill og mjór. Hann var með teina og skipt í píku og engin stelpa vildi kyssa hann. Í dag þá er hann forstjóri Samheildar og þénar meira en fjórar stórar á mánuði. Já muniði það, þið villtu dýr, að lítil typpi stækka mest.



» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
JÓLIN KOMA BRÁTT...